Breyting á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034
Breyting á svæðum í Sandgerði, S13 samfélagsþjónustu, AF-3 afþreyingar- og ferðamannasvæði, OP-2 opnu svæði og ÍB-12 íbúðasvæði.
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 5. nóvember 2025 tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða breytingu á þéttbýlisuppdrætti Sandgerðis og stærðartöflum í greinargerð aðalskipulags. Ekki er um að ræða breytingar á stefnumörkun aðalskipulagsins í neinum málaflokkum. Breytingin byggir á tillögu um nýtt deiliskipulag við Sandgerðiskirkju, tjaldsvæði og ferðaþjónustu þar sem lagðar eru til breytingar á afmörkun svæða.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Suðurnesjabæjar.
Sjá nánar breytingu á uppdrætti hér.
Suðurnesjabæ 11. febrúar 2026.
Jón Ben Einarsson skipulagsfulltrúi